|
|
17.12.2007 20:55:48 / Rúnar Ingi
Jólastuð, anyone? Ég gerði "deal" við djöfulinn áðan... nei ÚPS ég meina Elísabet að ef hún myndi blogga þá myndi ég blogga svo hér er mitt framlag. Allavega þá er hér með hafið átak á þessari síðu. Allir að taka sig til og byrja að blogga um ömurlegu lífin sín.. Semsagt alveg helling búið að gerast. Eða hvað? Heil önn búin í skólanum og próflokadjammið búið. Held samt að það hafi ekki margir mætt á þetta djamm. Líklega vegna þess að það var 18+ inn á Yello. Var eiginlega tómt klúður við hefðum átt að hittast eins og við gerðum alltaf einusinni. Einhver að halda partý og svo ALLIR að mæta.. en það virðist vera liðin tíð. Allir eru að gera eitthvað annað mikilvægara en að drekka sig fulla og fara á trúnó með gömlum vinum. Mér finnst að við þurfum að gera eitthvað í þessu. En yfir í allt annað! Jólin eru að koma svo núna er fullkominn tími til að fara í Bónus og kaupa eitthvað fallegt og ódýrt handa þeim sem þér þykir vænt um. Ef ykkur er sama þó þið fáið líklega ekkert frá mér en viljið gefa mér eitthvað þá getið þið klikkað á jólasveininn til að sjá óskalistann minn  Svo þangað til næst... GLEÐILEG Jól og BLESS! 
»
17.12.2007 19:38:18 / Elisabet
Já ekki gera ykkur einhverjar vonir um að ég sé að fara að rétta við síðuna og blogga reglulega, því þetta er ekki svona "ný byrjun blogg". Ég var bara að koma úr vinnu og langaði ýkt í tölvuna, en guess what...fann ekkert að gera svo mín ákvað bara að skella inn þessu bloggi Já mikið búið að gerast síðan seinast var bloggað. Ég gift með 3 börn, hús og hund......neii í rauninni er allt við það sama nema það að ég er komin með bílpróf very nice En váá í fréttunum um daginn kom klárlega staðfesting á því sem við Árný erum alltaf að röfla um...nei ekki það að karlemnn séu hálvitar heldur því að Bandaríkjamenn séu það. Greyið stelpan sem var tekin og farið með eins og stórglæpamann, váá hvað ég væri aldrei ´á leiðinni til Bandaríkjanna aftur ef ég væri hún æjæjæj....meira bullið í þessum örvæntingarfullu bandaríkjamönnum, halda að allir séu hryðjuverkamenn  Smá pæling um mannleg samskipti...ætli undirmeðvitundin velji þá sem við eigum að umgangast fyrirfram því maður getur t.d. ekki þolað einhverja manneskju, alltaf að rífast við hana og hún farið í manns fínustu taugar en samt er þetta manneskjan sem þú vilt umgangast sem mest, finnst þægilegt að vera nálægt henni og já, þykir bara mjög vænt um hana...síðan getur þú hitt manneskju sem er alltaf voða þægileg í umgengni, ýkt nice, skemmtileg og kurteis alltaf við þig en samt langar þig ekkert að hanga neitt með henni. Æjji þetta meikar ekkert sence. Bara röfl og ekkert annað. Elísabet 
»
21.08.2007 14:11:07 / Elisabet
jámm, við skelltum okkur nokkur á Dalvík þegar fiskidagurinn mikli var. Við Guðni fórum á fimmtudagskvöldinu, hehe vorum komin klukkan 3 og búin að tjalda klukkan 4, horfðum á sólina fara niður og koma upp aftur geggjað. Síðan skelltum við okkur bara tvö á Akureyri á föstudeginum. Keyptum einnota myndavél og svona ýkt nice, skoða endurnar. Síðan kom Jón Árni þegar vð vorum komin á Dalvík aftur. Svo við 3skelltum okkur í nokkrar fiskisúpur, ógeðslega gaman ýkt mikil stemning Þá nótt komu svo Rúnar og Stefán og strax byrjuðu vandræðin. hehe, þeir ákváðu að færa eitthvað tjald þarna og heldurur að pabbi strákanna sem áttu tjaldið hafi ekki orðið brjálaður æjæj Á laugardeginum skelltum við okkur niðurí bæ í fisk og siglingu, rosa stemning. Svo var kvöldið ekekrt spes. allir á djammið nema Elísabet skilin eftir hehe  Síðan núna seinustu helgi skelltum við Árný, Guðni, Rúnar og Bjarndís okkur á menningarnótt. Ýkt gaman, misstum af öllu en náðum þó flugeldasýningunni, sem var ömurleg, við vorum svo langt frá að maður heyrði ekkert. Það er ekkert gaman að horfa á ljósin ef það koma engir hvellir En svo vara bara rölt um bæinn til 4. við Guðni hittum Anton og Halldór, stungum þá Garðbúana og keflvíkingana af alla nema Árnýju. Síðan stungum við þau af seinna löbbuðum bara tvö. ógeðslega gaman Guðni var ekkert að drekka, gott hjá honum, hehe hann hafði verið á pínu miklu fylleríi á föstudeginum :/ Síðan er skólinn að byrja, váá var búin að gleyma hvað þetta er ömurlegt. Kennararnir strax farnir að fara í taugarnar á mér og strax komin með leið á þessum skóla En sjáum til hvernig þetta fer. Allavega hitti alla krakkana aftur  Kv. Elísabet
»
28.07.2007 20:46:28 / Elisabet
Já þessi helgi er
hreint út sagt búin að vera geggjuð, allavega það sem er búið
af henni 
Í gær, semsagt á föstudegi,
ákváðum við Guðni, Fanney og Rúnar að skella okkur í tívolí og bíó.
Byrjuðum á því að fá okkur að borða á Pizza Hut, þar sem við gerðum
okkur víst að algjerum fíflum, við Rúnar, töluðum alltof hátt í
símann. Allavega að Fanneyjar og Guðna mati, snobbhænur, skiptir
engu máli hver heyrir hvað þú segir í símann...puff Síðan lá
leið okkar í farandstívolíið í Smáralindinni. Þar var byrjað á því
að skella sér í kolkrabbann eða hvað sem þetta er, geggjað stuð.
Hehe ég samt fór ekki í nema einhver 3 tæki. Skemmti mér samt alveg
ýkt vel. Hin skelltu sér svo í Superbowl, það var víst geggjað,
veit um eina manneskju sem var víst drulluhrædd og skalf þegar
hún/hann kom úr tækinu. Snilld, hló ýkt af þeim :´D Svo eftir
tivolíið var skellt sér á einn Laugarvegsrúnt og fleira. Sumir
strippuðu og lágu svo á gluggunum á bílnum ;'D
Síðan var skellt sér á
heimsfrumsýningu á Simpsons movie í lúxussal Smárabíós. Geggjað
þægilegt...huhumm, get voða lítið sagt um myndina, hmm, svaf meiri
hlutann af henni En þau hin segja að hún sé algjört
masterstykki 
Síðan í dag skelltum við okkur
vinahópurinn, eða meirihlutinn af honum í bláa lónið, það var bara
nice, sérstaklega eftir klessubílana í tívolíinu kvöldið áður, þar
sem ég var öll blá og marin eftir þá Ýkt gaman að hittast svona
mörg og gera eitthvað saman. Reyndar var það flaska, ákveðin
manneskja og piss sem á endanum rak okkur uppúr. Guðný reyndar fór
eitthvað fyrr uppúr, sem var fúlt, en var samt bara ánægð með að
hún kom 
Eftir bláa lónið skutluðum við
Guðni Árnýju á Akranes. Ágæt en svolítið dýr roadtrip. Hehe þetta
var samt bara æði ;D Fékk að hitta Höllu Líf aftur, ýkt langt síðan
ég hef hitt hana. Algjör snúlla Síðan fórum við Guðni bara í
bæinn að éta og svo er planið að hanga bara heima í kvöld Rúnar
og Fanney kíkja kannski í heimsókn 
»
15.07.2007 18:34:49 / Elisabet
jæja, ekkert spennandi búið
að gerast eða? Voðalega finnst mér þessi síða vera að drepast
en það er svosum allt í lagi, ég nota hana þá bara til að
röfla eins og við Árný ætluðum að nota hana til
fyrst...
En já vinna, ohh ég er í fínni
vinnu, með alveg hreint frábæru fólki, en samt get ég ekki beðið
eftir að skólinn byrji. Er ég sú eina eða?
Ég meina, það er svo mikil
fjölbreytni í skólanum og í rauninni er skólinn bara draumadjobbið
Ég meina, þú gerir aldrei það sama hvern dag, lærir alltaf
eitthvað nýtt. Stundum er meira að segja námsefnið ágætt Og ég
meina það besta við skólan er að vinnufélagarnir eru vinirnir
Hversu gott getur það orðið?? Ég get allavega ekki beðið eftir að
komast í skólann aftur.
En váá hvað mig er búiða að
langa til að fara að hreyfa mig seinustu daga..ekkert neitt
líkamsræktarlegt, bara þú veist, út í fótbolta eða körfu, bara
svona vinirnir eða eitthvað. Það væri ýkt nice.
Harry Potter kominn í
bíó..úff venjulega væri ég sko löngu farin í bíó...hehe var algjör
Harry Potter fan sko, skil ekki hvað er að gerast. Ekki það að mér
finnst þetta allt alveg fínar myndir og jú bækurnar eru ýkt góðar
sko... en samt hlakka ég heldur ekkert til bókarinnar, kannski
tengist þetta því eitthvað að núna hef ég minni tíma til að lesa og
fara í bíó. Gæti haft eitthvað með málið að gera. En samt er sko á
leiðinni að sjá þessa mynd og það yrði bara drullugaman að fara á
hana gömlu bekkjarsystkinin, þessi sem eru í vinahópnum. Svona eins
og í tíunda bekk, geggjað stuð. Væri samt ennþá meiri snilld ef
Andri Potter kæmi líka, en nei þá er hann bara eitthvað að chilla í
eyjum, öruggulega búin að gleyma okkur öllum hehe

En svo er það aðalfréttin, hehe eignaðist lítinn frænda
seinasta laugardag þ.e. 07.07.07 ýkt sætur, algjör prins
Þessi verður sko dekraður í klessu
:*
Well, I´m
out
Elísabet
Guðjónsdóttir
:D
»
03.07.2007 16:06:19 / Elisabet
Hehe, jæja smá aumingjaskapur í minni og þess vegna er ég ekki í
vinnunni, svo hvað annað á maður þá að taka sér fyrir hendur en að
blogga??? ´
En já sólseturshátíðin nýafstaðin, ekkert smá af fólki sem
mætti, hef bara aldrei séð svona marga bíla útá skaga, hvað þá
tjöld, fellihýsi og húsbíla Enginn smá fjöldi. En já fyrir
kvöldvökuna á laugardeginum hittumst við nokkur heima hjá Guðnýju.
Frekar lítið og kósý..ýkt nice. Sumir grilluðu en við Rúnar ákváðum
að vera heima að borða, sko á sitthvoru heimilinu. Síðan skelltum
við okkur til Guðnýjar og þar var spjallað og farið í eplasafaleiki
Svaka fjör. Síðan skelltum við okku útá Skaga að horfa á
brennuna..hmm eða brettin brenna. hehe 3 bretti, það var öll
brennan, eitt fyndnasta sem eg hef séð lengi En jæja svo var
ferðinni heitið aftur heim til Guðnýjar. Síðan komu seinna um
kvöldið Árný, Guðrún, Sævar, Ingó og eitthverjar smápíkur. Alli,
Óttar og Gissur kíktu síðan líka aðeins við en annars var þetta
bara fámennt og voða gaman. Ég var víst alveg hundleiðinleg en hvað
með það, ég þurfti ekkert að hlusta á mig þannig að mér er sama

Svo er bara búinn að vera aumingjaskapur í mér núna seinustu
daga en hvað með það 
Jámm.. Fann þetta á mbl.is
Hvernig við Guðni pössum saman Hehe rífumst kannski smá
eða?
Ljón og Meyja
Athafnakraftur
Ljón og Meyja eru ólík og eiga ekki sérlega vel
saman. Einkennandi fyrir samband þeirra er ákveðin togstreita, en
einnig athafnakraftur og dugnaður. Þetta eru merki sem vilja sjá
árangur og gera hlutina vel. Vinna skiptir máli, en einnig það að
skemmta sér og njóta lífsins.
Hugsjónir og raunsæi
Það jákvæða er að Ljón og Meyja geta bætt hvort
annað upp. Augljóslega er gott fyrir hið stórtæka Ljón að fá til
liðs við sig jarðbundna Meyju sem getur séð um hin hagnýt
smáatriði. Áræði og hugmyndaauðgi í sambland við jarðbundið raunsæi
og skipulag býður upp á góða möguleika, sérstaklega þegar ýmis
konar framkvæmdir eru annars vegar.
Ég og Guðni??? Hehe 
Þeir sem þekkja okkur
bæði mega alveg svara hvort þetta sé eitthvað bull bara eða
hvort það sé eitthvað vit í þessu?
»
22.06.2007 17:42:03 / sletturnar
Já, lífið sjálft er stundum erfitt og stundum létt. Það fer oftast
eftir því hvernig maður lítur á það. Hvort maður sé jákvæður eða
svartsýnn. Líður illa eða vel. Hmm... það verður alltaf til bæði
vont fólk og gott fólk. Ef að það væru allir góðir hvernig væri
lífið, of rólegt held ég og lítið spennandi. En ef allir væru
vondir, ja allir mundu farast.. Það mundu bara enginn lifa af lengi
í þeim heimi... Þannig að það þarf að vera bæði til vont og gott
fólk. En spurningin er, hvor megin vill maður vera? Ég er einn af
þeim góðu. Jamm, reyni að hjálpa fólki en maður þarf samt líka að
hjálpa sjálfum sér. Maður getur ekki látið öðrum líða vel ef manni
líður sjálfum illa. Það gengur ekki. Eins og er... Trúin er sterk
en ekki sterkari en kærleikurinn. Kærleikurinn er hrein orka, hrein
umhyggja, hrein ást. Kærleikurinn er ljósið í myrkrinu. Jamm... En
hvað með fólk sem er alltaf með áhyggjur af framtíðinni og er
alltaf að sjá eftir því sem það gerði í fortíðinni, það gleymir að
lifa í nútíðinni. Af hverju að hafa óþarfa áhyggjur af framtíðinni?
Það er tilgangslaust, það besta er að njóta augnabliksins sem er..
Njóta nútíðinnar, Nútíðin verður nefnilega fortíðin á morgun og er
framtíðin sem maður beið eftir daginn áður. Hehe, skondið ekki
satt. Ef maður pælir í því.. Þá er soldið flókið að lifa góðu lífi,
því það er svo einfalt, of einfalt. Hehe. En auðvitað er í lagi að
plana ekkað sem maður ætlar að gera en samt ekki of mikið. Það er í
lagi að minnast einhvers sem maður hefur gert, en að vera að sjá
endalaust eftir einhverju er tímasóun, það er ekki hægt að breyta
því liðna en maður getur ákveðið það að gera ekki sömu mistökin í
stað þess að vera sífellt að hugsa um hvernig hefði farið ef maður
hefði ekki gert nein mistök. Og fólk sem stöðugt þarf að fá
sannarnir fyrir öllu, það neitar að horfast í augu við lífið eins
og það er. Meina það er ekki hægt að sanna neitt alveg 100%
Endalaus leit að sönnunum gerir mann tortryggna út í alla hluti,
meina hugsum sem svo að allir væru að leita að sönnunum um alla
skapaða hluti, hehe hvernig væri lífið þá. Einhver segir kannski
við mann: ,,Það er góður dagur í dag. Og þá mundu allir spurja
hann: ,,Geturðu sannað það? Hehe, auðvitað gæti hann það ekki.. En
hann gæti reynt það en það eru allir með mismunandi skoðanir og svo
þegar honum tækist kannski að sanna það þá mundu fólk spurja aftur:
,,Geturðu sannað það að sú sönnun sé sönn? Hehehe.. Ég myndi ekki
vilja lifað í þannig heimi. Og af hverju þarf fólk alltaf að vera
að monta sig? Hvaða gagn er af því. Það er ekkert gaman að fólki
sem er alltaf að segja: ,,Ég á þetta og þetta og þetta. Þú átt ekki
neitt, hehheeh. Common, þá yrði maður bara móðgaður eða ekkað. Það
er heldur ekkert gaman að eiga fullt af öllu og geta eignast það
sem manni langar í og deila því ekki með öðrum. Maður verður bara
eigingjarn af því. Ég dýrka að gefa með mér en maður þarf samt ekki
stöðugt að gera það, aðalega deila með sér þegar fólk þafnast þess
sem maður á nóg af. Til dæmis ef maður er ríkur, af hverju þá ekki
að gefa þeim sem eru fátækir og virkilega þarfnast peninga,
einhvern hluta af þeim. Ja, þetta voru bara nokkrar pælingar um
lífið sjálft frá mér. Vonandi farið þið að hugsa aðeins af því að
lesa þessar pælingar og lærið kannski ekkað af þeim. Lífið þarf
ekki endilega að vera erfitt, það getur verið létt og skemmtilegt.
Maður skapar sína eigin framtíð; með hugsun sinni, framkomu og
persónuleika.
»
12.06.2007 19:48:30 / sletturnar
Jæja stutt og gott blogg(hnitmiðað).
Það er alveg hreint geggjað veður alltaf núna. Misjafnlega heitt en
samt alltaf sól nánast allan sólarhringinn. Núna er bara stanslaus
vinna í gangi og allir svaka duglegir.
Annars þá er planið að skemmta sér vel um helgina. Fara á Akureyri
á bíladaga og vera þar frá föstudegi til sunnudags. Fullt af hlutum
í gangi: götuspyrna, burnout, bílasýning og helling annað
Allavega þá er ég eins og flest allir vita búinn að kaupa mér bíl.
Bíllinn er VW Passat 2.0
Bæbæ
»
05.06.2007 21:38:15 / sletturnar
Þessi spurning hefur brunnið á nokkrum mönnum og
langar sumu fólki að vita svarið . Ég las mér til og ákvað að
deila þekkingunni með ykkur . Hver fann upp sápuna? - Það veit
enginn nákvæmlega hver fann upp sápuna en samkvæmt heimildum á
vefsetrinu Encyclopædia Britannica hefur sápa verið notuð í að
minnsta kosti 2300 ár. Samkvæmt alfræðingnum Plíníusi eldra bjuggu
Fönikíumenn til sápu úr geitartólgum og viðarösku um 600 fyrir
Krist. Á miðöldum fór sápugerð aðallega fram í þremur borgum í
Evrópu, Marseille í Frakklandi og Genúa og Feneyjum á Ítalíu. Til
forna var sápan búin til úr dýrafitu og viðarösku. Öskunni var dýft
í vatn og fitu bætt útí blönduna. Blandan var síðan soðin og ösku
bætt nokkrum sinnum aftur við þegar vatnið gufaði upp. Meðan á
þessu stóð skipti fitan sér upp og fitusýrurnar gengu í samband við
vatnsleysanleg kolefni öskunnar og þá myndaðist sápa.
Guðni
»
04.06.2007 19:34:20 / Elisabet
Jæja kellan byrjuð að vinna Er að vinna í Lyf og heilsu í kef
núna...það er bara ágætt..djöö er samt skrítið að fara að vakna
svona snemma aftur eftir þetta frábæra sumarfrí mitt Annars var
Guðni búinn að vera helvíti duglegur við að vekja mig á morgnanna
áður, eeen þá gat maður alltaf farið að sofa aftur Annars er
voða lítið að frétta, þarseinustu helgi var ég í
Grindavík...hittingur hjá Lejoni. Guðrún kom, ýkt gaman að hitta
hana eftir svona langan tíma :* Annars var þetta eiginlega bara
drama... Guðni skellti sér á Deep Purple tónleikana á sunnudeginum.
Það var víst svaka stuð, en á meðan var ég hjá Lejoni. Svo komu
Stebbi og Guðni til Ljóna eftir tónleikana, við Guðni vorum ekkert
lengi, fórum bara heim að sofa 

Svo er ég búin að vera allsstaðar annarsstaðar en heima hjá mér
í vikunni. Í Rvk að passa fyrir Heiðu, svo kom Ljóni og var ýkt
góður að ná i mig...en reyndar drifum við ekki alla leið í Garðinn
og enduðum í Grindavík hehe en jámm þá gisti ég bara hjá
Guðna.
Svo núna seinustu helgi byrjaði ég að vinna, var að vinna til
sex þá kom Rúnar að ná í mig. Þá fór ég heim, borðaði og þá kom
Guðni að ná í mig. Var svo í Grindavík um helgina (surprise) ;P En
jámm, var víst eitthvað um að vera hjá Rúnari á föstudeginum, ég
var ekki þar. Stefán, Einvarður, Björn og Árný komu reyndar á
föstudeginum í Grindaví að veita mér smá félagsskap. Það var
eitthvað fjölskylduball í Festi og Guðni, Lejon og co. voru í
gæslu. EEeen þessir Garðbúar ákváðu síðan að beila á mér klukkan 22
og fóru heim, þá fór ég bara heim til Guðna, Óli kom síðan ð náí
mig, skelltum okkur á ballið aftur, ég var bara með Elku og Ljóna,
geggjað stuð 
Síðan komu Rúnar, Karín, Hildur, Fanney og Stebbi í Grv á
laugardagskveldinu, hitti þau voða lítið...Þau gistu á
tjaldsvæðinu, voða stuð get ég ímyndað mér Síðan fórum við Rúnar
og Fanney og 10 vanilluíspinnar aðeins uppá bryggju á sunudeginum,
misstum ekki af ræðunni  Þar var verið að selja candyfloss ...
plataði Fanneyju aðeins 
Annars er þetta orðið drullulangt blogg um ekkert þannig að
En já hvenær eigum við að hittast stelpur? Ég vill fara að plana,
og eins með Bláa lónsferðina sem við erum að spá í að fara...er
ekki málið að fara bara næst þegar Það verður gott veður?? ;*

»
14.05.2007 19:34:00 / sletturnar
Jæja, fólk vil fá nýtt blogg so here it
comes 
Já finnst ekki eins og ég ætti að vera að skrifa
þetta blogg þar sem ég hef bara alveg nákvæmlga ekkert að segja, en
þar sem strákarnir eru báðir að vinna og ég er eini slugsinn sem er
ekki að vinna so here it goes.
Ætla bara að skrifa það helsta sem hefur verið að
gerast seinustu daga 
*Mikið búin að
vera að hanga í grindavík
*Heiti potturinn á
fullu í góða veðrinu
*Rúntar með Rúnari
hingað og þangað
*Prófin eru búin

*Stelpukvöld og
party hjá Guðnýju (veit það er langt síðan en jæja guess what
ekkert búið að blogga um það ) Það var samt geggjað, sérstaklega
stelpukvöldið, ýkt nice ;*
*Ég fékk að skjóta
úr riffli um daginn 
*Labbitúrar útá
skaga, hehehe. Í fyrsta skiptið með Árnýju en í annað með Rúnari og
Fanneyju. Og vissuð þið að það eru 34 ljósastaurar frá stóra
trukknum útá skaga haha Fanney, við erum ýkt gáfaðar, erum einar
af þeim fáu sem vita þetta 
*Fór í bláa lónið,
very nice verst hvað það er nálægt Grindavík, maður fann
alveg Grindavikurfýluna þaðan ;P
*Party hjá
Rúnari...æjji giska á að allir séu búnir að heyra eða lesa um það.
Við erum svo miklir krimmar..ekki það að þetta var voða
saklaust....eiginlega ekkert party, frekar svona hittingur, vorum
svo fá Samt geðveikt stuð, fannst mér allavega

*Stebbi player
varð að hafa þetta með :*
*Stefán Arnar á
afmæli í dag, til hamingju ;*
*Guðni og
Óli Már snoðaðir
Jæja, ef strákarnir hafa eitthvað
betra að segja eftir prófin þá skella þeir inn nýjum bloggum
En ég get allavega verið sátt....ekki hægt að skamma mig
fyrir að blogga ekki 

Elísabet
»
27.04.2007 15:40:34 / sletturnar
Ég labbiaði inná stofu í gær og fékk
mér eitt læt koma mynd af því seinna
Hérna að neðan er mín skoðun borin fram. Svo ekki vera að tauta um
hvort þetta sé vitlaust or some.
Þetta er sögur sem ég hef heyrt, og það sem ég "veit" 
Og er þarna eflaust mikið stolið af einhverjarri síðu sem ég man
eigi hvað hét.
En ég las hana og festist hún svona andskoti vel í hausnum á mér.
Og lét það mig akkurat
vilja að búa til grein handa ykkur. 
Svoh ekki heldur vera hissa ef einhvað af þessu sé stolið af öðrum
síðum.
- Er tattoo sárt?
Ég byrja á þessari grein á þessari spurningu, því flestir sem eru
að fá sér tattoo
spyrja oftast að henni fyrst. Og svarið er einfalt, Já, Að fá
tattoo er sárt.
En auðvitað fer það allveg eftir manneskju og hvar tattooið
er.
Ef verið er að tattooera stað sem er nálagt beininu þá er það
vont, eða mun verra
en þegar tattooerað á stöðum sem meira hold er á.
En að vera tattoo-eraður er hinsvegar ekki nærðum því jafn vont og
maður heldur.
Maður undur býr sig undir svo mikið, sem gerir eflaust það að
verkum að maður
finnur ekki jafn mikið fyrir.
Þetta er t.d. ekki nærðum því jafn óþægilegt og verið að sprauta
mann, þótt þetta
sé í svipuðum dúr. Þetta er heldur nær víbringi sem manni getur
fundist þó óþæginlegur.
En auðvitað hjálpar líkaminn manni að forðast sársaukanum með því
að dæla "Endorphins"
eða deyfilyf svo maður finni ekki jafn mikið til.
Fer það líka allveg eftir hvar þú færð þér tattoo, líkaminn nær
ekki endilega að dæla
jafn miklu deyfilyfi á suma staði.
En auðvitað er aðal atriðið hversu sterkt hugafar þú hefur, og
hvort þú nærð ekki að deyfa sársaukann
bara með hugarafli.
Allt voða persónubundið.
Enda þessa spurningu samt sem áður með því að segja:
EKKI reyna að deyfa sársaukann með áfengi, dópi eða jafnvel
íbúfen.
Því allt þetta þynnir blóðið sem gerir að verkum að blóðið mun
eflaust flæða meira, og eflaust
mun sárin vera lengur að gróa.
- Ætti ég að fá mér tattoo ?
Auðvitað, þú ert nú þegar byrjaður að lesa þetta, eða einhvað sem
tilheyrir /húðflur þá
er þér byrjað að langa í tattoo, eða þekkir einhvern sem langar í
þetta.
En samkvæmt netinu þá er sagt að 1/3 af fólkinu sem fær sér
tattoo, mun sjá eftir því.
En auðvitað ef þú telur þig vilja tattoo sem þú munt ekki sjá
eftir, þá er gott að vona
hið besta. thihi 
- Ætti ég að fá mér eitt ?
Það er auðvitað erfitt svar, en vill ég þó segja nei ef þessar eru
ástæðurnar.
Vilt fá þér tattoo því kærastinn vill það.
Vilt fá þér tattoo til að tilheyra vissum hópi
Vilt sýna ást þína á einhverjum með því að skrifa nafnið hans á
þig.
Þessar ástæður finnst -MÉR- allveg hreynt og beint allveg
hörmulegar.
Þessar ástæður munt þú eflast sjá eftir eftir hvað 5? - 10? - 20
ár?
En auðvitað ef þú vilt aðeins skreyta líkamann, af þínu eigin
höfði þá er það allt annað mál.
En þá kemur auðvitað að myndinni.
Þegar valið er mynd, stafi eða hvað sem er sem á að vera
tattooer-að á þig
þarft þú að hugsa smá út í frammtíðina. S.s. Hvar þú ættlar að
vinna og hvort tattoo-ið á
heima þar. Hvort þér finnst ekki barbí dúkka á hendinni ekki
soldið barnalegt þegar þú ert 30-50 ára
eða hvort fólk muni ekki horfa öðruvísi á þig út af þessu
tattoo-i.
Því þegar fólk er orðið eldra og reynir að fá sér vinnu, er oft þá
dæmt út af útliti.
Þá er gott að vera ekki með tattoo á áberandi stað.
- Er hægt að taka það af ?
Það er hægt, en ekki nærðum því jafn auðvelt og fólk heldur.
Og ekki er það neitt ódýrt heldur.
Og ekki nóg með það, heldur ef þú ættlar að taka tattoo-ið af,
muntu eflaust fá stóra ör
og svo er ekkert víst að það sé til þannig læknir á Íslandi.
Þarftu þá að fara langt í burtu, aðeins til að lostna við
einhverja vitleysu sem þér
datt í hug að gera, því þér fannst það kannski fyndið á þeim
tíma.
Meina, Kannski er tattoo ekkert fyrir þig
Þú þarft ekkert endilega að fá þér tatto því hinir og þessir segja
þér að fá þér.
Þarft heldur ekkert að fá þér tattoo bara því þú færð það á svo
góðu verði.
Láttu ekki félagana rugla þig. Haldu þig við ÞÍNAR skoðanir.
»
25.04.2007 19:01:27 / sletturnar
Ég ákvað að hafa titilinn alveg nógu leiðinlegan þannig að fólk
nennti ekki að lesa þetta blogg, með því er ég að vera viss um að
sem flestir verða ekki fyrir vonbrigðum með þetta blogg.... Því í
rauninni hef ég alveg nákvæmlega ekkert að segja EEEnnn, þar sem
mér finnst svo súper gaman að röfla og það er svolítið það hefur
verið bloggað á þessari síðu þá ákvað ég bara að skella inn nokkrum
leiðinlegum setningum 
 
Lærdómur og aftur lærdómur: hafa kennarar virkilega ekkert annað
að gera seinustu vikuna fyrir próf en að skella á nemendurna tonn
af prófum??? ég allavega er í tveim til 3 prófum á dag...sem
gerir það að verkum, þar sem ég er algjör nörd, að ég sit bara inni
allan daginn og læri algjört bulshit. En jámm, kannski maður
tossist pínu á morgunn, sleppi tónó (as usual) og skreppi í bæinn

Pretty much what has been going on hjá mér....en já aðeins
meira röfl
Hvað er málið með fólk og sambönd, fólk virðist ekkert vita hvað
það vill, svíkur mann og annan til að komast að því, og ég þarf
alltaf að taka það nærri mér þegar þetta gerist með vini mína
makes my life harder (tek það fram að þetta röfl tengist
mínu sambandi nákvæmlega ekkert, það gengur fínt) <3
  
En já Rúnar er þetta blogg kannski að verða of EMO fyrir þig? Á
ég að hætta?
EEEn , mannstu ég reyndar sagðist ætla gerast EMO eftir
tónlikana, snilldartónleikar by the way skemmti mér
geðveikt vel, hefði tekið mig vel út fremst við sviðið að hrista
hárið í takt við tónlistina 
haha, ok búin..hehe Hvernig er annars stemningin fyrir
helgina??
EMO!!!
»
22.04.2007 19:45:07 / sletturnar
Draumar... Ég hef oft
verið að pæla hvað draumar sem mig dreymir þýða, ég er ekki
samt mikið að fara í svona draumaráðningabók og leita þar
eitthvað. Sumir segja að ef þig dreymir eitthvað þá sé
akkurat öfugt sem bíður manns. Það eru líka til
góðir draumar og slæmir drumar. Mig hefur ekki lengi, eða svo
ég muni, fengið martröð. Það er allveg einstaklega
skemmtilegt hvað draumar geta verið skrítnir, allveg
þýðingarlausir eða bara með allveg svakalega mikla merkingu,
oft sami draumurinn jafnvel. Margir kannast líka við að
dreyma draum og svo gerist hann, ef þið fattið hvað ég
meina
Ég hef oft pælt svona í draumum.. Stundum verða þeir svo
raunvörulegir að manni langar ekki að vakna, að svona sé þetta bara
í alvöru, kannist þig við þetta?
»
20.04.2007 09:44:20 / sletturnar
Jæja það er mjög langt síðan við höfum bloggað(Rúnar og
Elísabet) svo það er löngu kominn tími á þetta blogg. Í raun er
nokkuð mikið búið að vera að gerast síðustu daga. Hver er að
flengja hvern? Hvar keypti Davíð ölið? Og afhverju er útlitið á
blogginu ALLTAF breytast? Afhverju er gult doritos betra en grænt?
Þetta eru spurningar sem við munum svara(kannski) en aðalega miunum
við renna yfir helstu atriði liðinar viku.
Meðal annars þá fórum við nokkrum sinnum á rúntinn. Keyptum okkur
nokkrar coke í gleri og stoppuðum nokkrum sinnum á aðalstöðini.
Núna ætla ég samt að tala um ballið. Ballið byrjaði í raun fyrir
okkur um klukkan 20.00 því þá fórum við beint til Björns þar sem
við vinirnir ákváðum að hittast. Reyndar þá föttuðum við fljótt
eftir að við mættum með helling af eplasafa með okkur að það væri
alls ekkert pláss fyrir hann allan í ísskápnum svo Jón Árni keyrði
okkur útí búð og við minsotuðum "ókeypis klaki" tilboðið sem var í
gangi þar og fylltum nokkra poka af ís. Svo stungum við bara
eplasafanum ofaní og namminamm var hann ekki góður þegar hann kom
svo uppúr honum aftur 
En margir mega samt eiga þann heiður að sleppa eplsasafanum
alveg þrátt fyrir ítarlegann félgaslegann hópþrýstin frá
jafningjahópnum. Flesti létu þó undan og gerðu jafnvel hluti sem
þeir vildu alls ekki gera...fólk er misjafnlega gott að þola þennan
þrýsting. Til hamingju sterka fólk.
Það var gaman í þessu fyrirpartý og dansaði djæf og allar
græjur(Elísabet og Rúnar). Svo var mikið af skemmtilegu fólki til
að tala við eða já rífast við. En á heimleiðini þá stoppaði löggan
okkur því hún var svo öfundsjúk útí okkur. En það fór allt vel.

Spurning hvort þið viljið þekkja þetta fólk eftir ballið en það
samt alveg ágæt innst innit.

Betri Sletturnar.
Föstudagskvöld
loksins helgin komin eftir langa vinnuvikuna
við lifum á öld þar sem er til siðs að skemmta sér rækilega
fer því á ball þar sem einhver hljómsveit spilar af líf' og sál
Þið kunnið þetta....
Takk fyrir okkur við skemmtum okkur vel með
ykkur 
»
Síður: 1 2 3 4
|
|